Aðalfundur 2021
Fundur haldinn 3. júní 2021 í húsakynnum SÍBS og Hjartaheilla í Síðumúla 6, Reykjavík
Sveinn Guðmundsson formaður LS setti fundinn og lagði fram tillögu um að Óskar Guðjónson yrði fundarstjóri sem var samþykkt samhljóða.
Óskar kannaði boðun fundar þar sem hann tilgreindi að hann var með lögmætum hætti og í samræmi við lög sambandsins, engar athugasemdir bárust við boðun fundarins eða lögmæti hans. Fundurinn hafði verið auglýstur í dagblöðum, landsmálablöðum og netpóstur sendur ennfremur.
Óskar gerði tillögu um að Eiður Eiðsson ritaði fundinn, samþykkt samhljóða.
Skýrsla formanns:
Sambandið gefur út bók sem haldið verður áfram, í henni er efni sem innihalda góðar upplýsingar.
Heimasíða félagsins er ekki nógu góð. Stefnt er að því að koma henni í betra horf í náinni framtíð.
Höfum verið að berjast við kerfið um söluhagnað af sumarhúsum, höfum talað við ráðherra og þingmenn að til að fá hann felldan niður. Sambandið lagið til í aðdraganda frumvarpsins að sumarhúsaeigendur þyrftu að hafa átt húsin í 4 ár til að fá söluhagnað af sumarhúsum felldan niður. Þetta breyttist í meðferð þingsins í 7 ár.
Í stóra samhenginu þá kaupir fólk yfirleitt íbúðarfasteignir þrisvar sinnum um ævina, en þegar fjölskyldur kaups sér frístundahús þá er það yfirleitt einu sinni. Þannig þessi aukning í árafjöld úr 4 í 7 ár getur alveg fallið innan marka að venjulegri notkun sumarhúsa. Sveinn sagði það hefði verið ánægjulegt að hlusta á ráðherra að fara með tölu sambandsins á Alþingi þegar mælt var fyrir frumvarpinu.
Formaður talaði við alla þingmenn um málið í undirbúningi þess, stjórnmálaflokkarnir kepptust síðan um hver mætti flytja frumvarpið. Þetta hafðist og spurning hvort það þarf að taka þetta upp seinna um tímaramman úr 7 ár í 4 ár, þ.e. ef sambandið telur þörf á því.
Fyrir liggur verkefni að fara betur yfir með sveitarfélögum að þau skilgreini þjónustu við sumarhúsaeigendur. Fyrir liggur að frístundahúsaeigndur greiða há fasteignagjöld. Verkefni sambandsins er að skoða þetta í samhengi við þau gjöld sem við erum að greiða og þá þjónustu sem við erum að fá. Fyrir liggur að ekki er hægt að hafa áhrif á verðmat Fasteignagjöld hækka á milli ára í samræmi við hækkun á verðmati. Þjónusta sem frístundahísaeigendur fá er takmörkuð. Sú þjónusta sem við fáum er síðan sérgreind og greitt sérstaklega fyrir hana s.s. rotþróta- og sorphirðugjöld. Sambandið mun á móti reyna að fá niður stuðulinn úr sem reiknað er útfrá. Hámarkið er o,6 promill og takmarkið að þakið verði aldrei meira enn o,3 promill sem fasteignagjöld yrðu reiknuð út frá. Til þess þarf að breyta lögum.
Fólk hefur verið duglegt að koma með kærumál og unnust þau öll fyrir Kærunefnd húsamála.
Eitt dómsmál vannst líka þar sem staðfest var meginreglur sem lög nr. 75/2008 boða.
Öryggismál eru mikilvæg til framtíðar, þurfum að fá skýrari línur hvernig staðið er að þeim hjá sveitarfélögum. Dóra Magnúsdóttir er viðstödd fundinn og er okkar helsti ráðgjafi í brunavarnarmálum
Í 8 ár var formaður sambandsins í stýrihóp sem skilaði áliti um gróðurelda og brunavarnir sem birt er á síðunni grodureldar.is.
Það má segja að það er eina staðbundna brunavörnin sem sett hefur niður á landsvísu, þ.e. vinna stýrihópsins. Nú er boltinn hjá sveitarfélögum. Mikill eldmatur er til staðar í frístundahúsabyggð. Búnaður og annað þarf að vera til staðar til að verjast eldi, sjálf getum við líka mikið gert með forvörnum.
Lýðheilsa og forvarnir skipta miklu máli. Mikilvægt er að tryggja öryggi í frístundahúsabyggðinni með skyndihjálp. Nauðsynlegt er að tryggja aðgang að búnaði sem er nauðsynlegur t.d. við hjartastopp. Í samráði við Hjartaheill er fundað stíft um hvernig frístundahúsafélögin geti komið sér upp svona tækjum ef á þarf að halda í byggðinni. Kominn er búnaður á markað sem hægt er að stað setja með GPS. Leggja þarf áherslu á það að félögin komi sér upp svona búnaði. Í byggingareglugerðum er vikið að búnaði um brunvarnir en ekkert um t.a.m. hjartastuðtæki sem getur bjargað mannslífum.
Það er auðvelt að vinna með þessi hjartastuðtæki, þau tala við okkur og leiðbeina í gegnum ferlið þegar þarf að nota þau.
Mikilvægt að bæta betur lagaumhverfi okkar sbr. lög um frístundahúsabyggðina og leigu lóða nr. 55/2008. Í mörgum atriðum þarf að uppfæra þau. Það þarf að virkja allsherjarnefnd og ráðuneytið sem fer með þennan málaflokk.
Lögheimilisskráning í sumarhúsum ætti að vera valkvæð. Hér er um að ræða sanngirnismál. Sambandið virkjaði stjórsýlslunefnd sem var á því að heimila lögheimilisskráningu með takmarkaðri þjónustu. Það var í raun eingöngu Samband íslenskra sveitarfélaga sem barðist hatrammlega gegn því að við fengjum þetta í gegn á sínum tíma og niðurstaðan var sú aðþetta varð ekki að lögum
Þekktir einstaklingar hafa fengið lögheimilsskráningu, þar eru fordæmi sem við getum beint á og við teljum að hinn almenni borgari eigi rétt á þessu.
Formaður nefndi að félögin þurfa að vita fyrir hvað sambandið stendur fyrir. Félagsmenn eiga að nota okkar þjónustu. Það eru dæmi um að félög hafa keypt lögfræðiþjónustu hjá þriðja aðila sem þau geta fengið frítt hjá okkur eða með miklum afslætti.
Það er mikilvægt að fylkja liði um starfið, fólk verður ekki mikið vart við hvað við erum að gera. Þá alveg bæta kynningarstarfið hjá okkur. Starfið er umfangsmikið þó engin sé á launaskrá.
Í lok skýrslu formanns hvatti hann fundarmenn til að lifa í bjartsýni og ljósinu í stað kvíða eða eins og skáldið kvað;
Allt sem guð vor sendir
menn gera úr kvíðanum hlíf.
Kvíða því sem aldrei hendir
og enda í kvíða sitt líf.
Reikningur:
Formaður gerði grein fyrir ársreikningi félagsins.
Félagsgjöld hafa dregist saman,
Rekstrartap 79.000 isk
Ekki mikill vilji til að hækka félagsgjöld, erum með símaþjónustu milli 9-12 alla virka daga sem skýrir símakostnað. Kostnaður við bókhaldsþjónusta dregst saman
Orðið laust fyrir skýrslu og reikninga
Dóra Magnúsdóttir spurði hvað væri innifalið í aðkeyptri þjónustu. Gert var grein fyrir því að skrifstofan er með opna skrifstofu 9-12 mánudaga til fimmtudaga. Fyrir utan þess er mikið starf á öðrum tíma og jafnvel um helgar. Verktakalaun hafa verið óbreytt í 12 ár en þó skýra að hluta til aðkeypta þjónustu.
Lilja Ólfasdóttir, sumarhúsafélagi Biskupstungum, spurði hvaðan vaxtagjöld kæmu í ársreikningi þegar engar skuldir væru í félaginu.
Formaður svaraði því til að vaxtagjöld koma til af því það þynnist sjóður til miðbik árs, þá þarf að draga á yfirdrátt sem við erum með í 3-4 mán á ári. Til að létta á fjárhagnum þá hefur formaður ennfremur lánað tímabundið án vaxta til að lækka vaxtagjöld.
Önnur mál
Sigurður minntist á sveitarfélög og álögur sem eru á sumarhúsaeigendur, það sé lítið sem sveitarfélagið lætur til baka á móti fasteignagjöldum, en bendir á rotþróargjald og sorpgjöld. Ekkert fer fyrir brunavörnum. Sigurður spyr er ekki sveitarfélögum skylt að koma upp brunavörnum?
Formaður svaraði því til að félagsmenn eru lítið að fá fyrir fasteignagjöldin. Ennfremurer greitt sérstaklega sorp- og rotþróargjald. Aldrei hefur fyllilega verið svarað, hvernig þau verða til, hvernig þau eru hugsuð og hvernig þau hækka er ekki ljóst og í besta falli mjög ógagnsætt. Í raun er verið að taka nefskatt á húsin en ekki fyrir hverja rotþró, það er á sumum stöðum rukkað fyrir hvert hús og þótt þau sameinist um sömu rotþrónna. Fyrir utan að þær eru ekki allar tæmdar reglulega, heldur hafi verktakar sigtað út hverjar þeirra eru sjálfbærar og tæmi þær ekki.
Sveitarfélögin eig að sjá um sorphirðu, það á að vera hreinsum og gámar í grennd við byggðirnar, ekki bara sorpmóttaka á sorpeyðingarstöðvum.
Brunavarnir er hluti af því sem sveitarféllög eiga að skaffa, þetta er viðkvæmt mál, sveitarfélögin eigi að fjármagna staðbundnar brunavarnir.
Tvær leiðir eig að vera út af öllum svæðinu, vatnsöflun er sums staðar ekki nægilega góð þegar kemur að brunavörnum og aðgengi slökkviliðs að nægu vatni ekki fyrir hendi þegar á reynir.
Lilja sagði að það sé komið í skipulagslög að tvær leiðir skuli vera út af sumarhúsasvæðum, þau lög eru ekki afturvirk og ná ekki yfir byggðir skipulagðar fyrir gildistöku laganna. Sumstaðar fá slökkvilið skipulag sumarhúsabyggða til umsagnar en alls ekki alltaf.
Óskar benti á í sambandi við eldvarnir að verið er að selja brunaslöngur á hjóli sem kosta 60.000 kr. stk. á meðan klappa kosta 10.000 isk stk.
Dóra Magnúsdóttir hvetur félögin á sínum svæðum til forvarna, fara inn á gróðurelda.is, hefur verið að vinna leiðbeiningar fyrir svæði í Biskupstungum, er safna upplýsingum um aðstæður á svæðinu.
Hörður kom fyrir hönd félags í Borgarfirði, þakkar fyrir upplýsingar sem hafa komið fram sem hægt er að nota á aðalfund í hans félagi.
Árgjaldið:
Tillaga stjórnar um félagsgjöld.
4.500 isk fyrir einstaklinga
3.000 isk fyrir hvern félagsmann í sumarhúsafélögum
Samþykkt samhljóða
Kosning stjórnar:
Sveinn Guðmundsson formaður gefur kost á sér áfram, samþykkt samhljóða
Í stjórn
Óskar Guðjónsson
Ingunn Lára
Samþykkt samhljóða
Tillaga um varastjórn
Ægir Frímannsson
Leó Daðason
Jónbjörg sigurjónsdóttir
Samþykkt samhljóða
Tillaga að endurskoðanda, ekki þarf lög endurskoðanda til að fara yfir reikninga félagsins.
Lagt til að Guðlaug Jónasdóttir viðurkenndur bókari fari yfir reikninga félagsins.
Samþykkt samhljóða
Formaður lokaorð:
Þakka fráfarandi stjórn fyrir samstarfið og hlakkar til að vinna með núverandi stjórn, búum vel af góðu fólki. Þarf að styrkja og efla forvarnir með upplýsingastarfi.
Formaður er vongóður að við fáum hljómgrunn í kerfinu, náðum góðum árangri á síðasta starfsári og höfum sparað sumarhúsaseigendum söluhagnað upp á 700 milljónir í ár sem fer ekki í skatta.
Vonin styrkir veikan þrótt,
vonin kvíða hrindir
vonin hverja vökunót
vonarljósin kyndir.
Vonin mér í brjósti býr
bestu hjartans auður;
vonin aldrei frá mér flýr
fyrri‘ en ég er dauður.
Takk fyrir góðan fund, hvet ykkur til að vera í bandi við okkur.