Aðalfundur 2015
Fundur haldinn 29. apríl 2015 á Grand Hótel í Sigtúni
Guðmundur Guðbjarnason setti fund kl. 20.10 og bauð fundarmenn velkomna en einnig sagðist hann hafa vonast eftir meiri fundarsókn.
Fundarstjóri var kjörinn Óskar Guðjónsson og fundarritari Guðrún Nikulásdóttir.
Óskar hóf fundinn með því að kanna hvort löglega hafi verið til hans boðað.
Gestur fundarins var Böðvar Tómasson frá bruna- og öryggismálasviði Eflu verkfræðistofu og fjallaði hann um bruna- og öryggismál að sumarhúsum. Byrjaði hann á því að kynna Eflu verkfræðistofu en því næst fjallaði hann um brunaöryggi sumarhússins. Brunaáhætta er oft mikil í sumarhúsum, langt er í slökkvilið og hætta á gróðureldum. Áríðandi er að viðbragðsáætlun sé til staðar og er það á ábyrgð bæði opinberra aðila og sumarhúsaeigenda að fylgja því eftir. Mikilvægt er að huga að flóttaleiðum sem ávallt ættu að vera tvær þannig að greið leið sé frá brunasvæði. Slökkvitæki og eldvarnarteppi eiga að vera í öllum sumarhúsum. Reykskynjarar og gasskynjarar, ef um það er að ræða, eru nauðsynlegur búnaður. Benti Böðvar á að slíkur öryggisbúnaður sé ekki kostnaðarsamur.
Fram kom hjá fundarmönnum að erfitt hefði verið að eiga við sum sveitarfélög og Vegagerðina um að fá að leggja flóttaleiðir úr sumarhúsahverfunum, þ.e. ekki hafa fengist heimildir til að fjölga útkeyrsluleiðum. Einhver sumarhúsafélög hafa farið í þær framkvæmdir án þess að leyfi hafi fengist og tilkynnt til viðkomand aðila og ekki hafa borist athugasemdir við framkvæmdirnar.
Fundargerð síðasta aðalfundar hefur verið birt á heimasíðu LS og í sumarhúsahandbókinni 2015.
Skýrsla stjórnar
Guðmundur Guðbjarnason flutti skýrslu stjórnar.
Stjórn LS var skipuð eftirtöldum aðilum: Guðmundur Guðbjarnason, formaður, Ægir Frímannsson, varaformaður og meðstjórnendur Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Nikulásdóttir og Óskar Guðjónsson. Varamenn Einar M. Nikulásson, Auðunn Kjartansson og Gunnar S. Björnsson. Endurskoðandi er Pétur Jónsson löggiltur endurskoðandi og framkvæmdastjóri Sveinn Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður.
Rekstur hefur verið með svipuðum hætti og undarfarin ár. Skrifstofan er opin fjóra daga í viku, þ.e. mánudaga til fimmtudaga kl. 9-12. Skrifstofan er nú til húsa að Laugavegi 178, Reykjavík. Haldnir hafa verið sjö stjórnarfundir á starfsárinu. Framkvæmdastjóri sambandsins veitir félagsmönnum leiðbeiningar í hinum ýmsu álita- og deilumálum er upp koma.
Útgáfa sumarhúsahandbókarinnar 2014 var með sama hætti og undanfarin ár og var í höndum Juralis ehf í samvinnu við Landssambandið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður var Sveinn Guðmundsson. Áætlað er að bókin komi út nú í sumarbyrjun. Bókin er vettvangur sambandsins til að koma fræðslu og upplýsingum til félagsmanna.
Unnið hefur verið að endurnýjun vefsíðu sambandsins. Þegar kerfið verður endanlega tilbúið er ætlunin að aðildarfélög sambandsins geti haft aðgang að félagsskrá sinna félaga inni á lokuðum hluta vefsíðunnar. Enginn utanaðkomandi aðili mun fá aðgang að þessum skrám en hvert félag mun þurfa að tilnefna tengilið sem þá hefur þann aðgang sem þarf til að gera leiðréttingar á skránni þannig að félagsmenn og stjórnarmenn félaga séu rétt skráðir. Til að geta komið boðum og hinum ýmsu upplýsingum til félagsmanna er nauðsynlegt að félagsskrár séu réttar. Mikið hefur verið unnið í félagsskránni og stöðugt þarf að vinna í að viðhalda henni réttri.
Lagasetningar, lög um örnefni. Það er hlutverk LS að gæta hagsmuna aðildarfélaga og einstakra félagsmanna gagnvart opinberum aðilum og má hér nefna lög 22/2015 um skráningarferil og staðarvísun staðfanga. Landssambandið sér mikla möguleika í því upplýsingakerfi sem fram kemur í lögunum til að koma öllum frístundahúsum á landinu inn í miðlægan gagnagrunn en í mörg ár hefur sambandið í samvinnu við Neyðarlínuna, Fasteignamatið, Vegagerðina og Landmælingar unnið að uppsetningu öryggisnúmera fyrir frístundahús.
Frumvarp um úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem lagt er til að sameinaðar verði sjö sjálfstæðar stjórnsýslunefndir, hlutverk þeirra á að vera að endurskoða ákvarðanir stjórnvalda í málum einstaklinga eða skera úr ágreiningi milli einstaklinga eða félaga, þar á meðal kærunefnd húsamála. Frumvarpið hefur ekki verið afgreitt frá þingnefnd. Aðeins fjögur mál hafa verið afgreidd frá kærunefnd húsamála frá síðasta aðalfundu LS. Fundarmönnum er bent á að skoða vefsíðuna www.urskurdir.is ef þeir vilja kynna sér málið nánar.
Frumvarp um veitingastaði, gistihald og skemmtanahald var lagt fram í aprílbyrjun. Er þar fjallað um að ef húsnæði er í leigu skemur en átta vikur þarf að skrá sig á vef sýsumannsembættis og greiða skráningargjald og staðfesta að eign uppfylli kröfur um brunavarnir. Ef leiga stendur lengur en átta vikur þarf að sækja um rekstrarleyfi fyrir gististað. Ekki er talið að LS eigi að hafa afskipti eða afstöðu í þessu máli, það sé á höndum opinberra aðila.
Þróun frístundahúsabyggða hefur breyst í áranna rás, frá því að byggðir voru einstaka sumarbústaðir að skipulögð eru heilu sumarhúsahverfin.
Söluhagnaður sumarhúsa hefur löngum verið umtalsefni og hefur Landssambandið barist fyrir því að hann verði felldur niður. Ítrekað var enn einu sinni með bréfi til fjármálaráðherra að hann beiti sér fyrir breytingu á lögum um tekjuskatt varðandi söluhagnað sumarbústaða og að sömu lög gildi um hann og sölu á íbúðarhúsnæði.
Tillögur að breytingu á lögum um frístundahúsabyggð Landssambandið hefur haft áhuga á breytingu er varðar framlengingu eða endurnýjun á lóðarleigusamningum. Tillögur Landssambandsins eru tilbúnar en beðið eftir því að fá fund til að kynna málefnið fyrir Velferðarráðuneytinu.
Fjármál Landssambandsins er þröngur stakkur búinn og verður nánar fjallað um það í ársreikningi. Skorað er á skuldug félög og félagsmenn að gera upp skuldir sínar. Eingöngu er einn launaður starfsmaður hjá Landssambandinu í hlutastarfi. Kostnaður við endurnýjun tölvukerfis og vefsíðu er helsti útgjaldaliðurinn en mun skila sér í öflugra starfi í framtíðinni.
Framtíð Landssambandsins Ef það á að vera trúverðugur og áhrifamikill þrýstihópur eins og það er kallað eða hagsmunasamtök verður hann að vera fjölmennur og áberandi í þjóðlífinu. Stuðla þarf að fjölgun félagsmanna. Mikil og góð vinna er unnin fyrir félagsmenn og mikils virði að hafa lögmann til að leita ráða hjá. Ef við ekki hefðum slíkan starfsmann og leita þyrfti til lögmannsstofu yrði kostnaður vegna þeirrar þjónustu mun meiri.
Aðildarfélög Landssambandsins eru 74 og hefur fækkað um þrjú. Félagafjöldi er 2.784 en var 3.108. Með einstaklingsaðild eru 1.242 en voru um 1.306 fyrir ári síðan.
Guðmundur lauk skýrslu sinni með því að bera fram þakklæti til Sveins Guðmundssonar fyrir störf hans í þágu Landssambandsins og meðstjórnendum þakkaði hann gott samstarf.
Ársreikningur 2014 lagður fram
Sveinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landssambandsins fór yfir helstu tölur.
Rekstrartekjur voru kr. 9.774.821 og rekstrargjöld kr. 9.575.190. Vaxtagjöld umfram vaxtatekjur voru kr. 23.038. Rekstrarhagnaður var kr. 176.593. Eigið fé kr. 3.257.766.
Var þessu næst orðið gefið laust um skýrslu stjórnar og ársreikninginn.
Rætt var um dreifingarkostnað rafmagns, er sami kostnaður fyrir aðra íbúa í dreifbýli. Lagt til að það verði skoðað nánar. Lóðarleiguverð var rætt og einnig störf úrskurðarnefndar kærumála sem mikið hefur verið ýtt á að afgreiði þau mál er þangað berast.
Rætt var um kostnað við vefsíðugerð, kostnað vegna símsvörunar, útgáfu sumarhúsahandbókarinnar, kallað var eftir rekstraráætlun ársins 2015. Sveinn svaraði fyrirspurnum og ábendingum fundarmanna og hvatti félagsmenn til að aðstoða stjórn við hin ýmsu störf er leysa þarf að hendi. Einnig óskaði hann eftir greinum til birtingar í Sumarhúsahandbókinni.
Voru reikningar bornir upp til samþykktar og voru samþykktir samhljóða.
Skýrsla laganefndar, engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum.
Árgjald ákveðið, Guðmundur nefndi að hugmynd um að rekstraráætlun væri góð en hingað til hefðu árgjöld stýrt rekstri. Lagði hann til að árgjald yrði óbreytt, þ.e. kr. 4.000 fyrir einstaklinga og kr. 2.000 fyrir hvert sumarhús í sumarhúsafélagi. Var þetta samþykkt samhljóða.
Kosning stjórnar
Guðmundur Guðbjarnason, formaður gefur kost á sér til endurkjörs til eins árs. Samþykkt með lófataki. Kjósa þarf tvo meðstjórnendur til tveggja ára, Óskar Guðjónsson gefur kost á sér til endurkjörs en Ægir Frímannsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs sem aðalmanns í stjórn en hann hefur setið í stjórn Landssambandsins frá 1996. Í hans stað gefur Stefanía Katrín Karlsdóttir kost á sér og voru þau Óskar og Stefanía samþykkt með lófataki. Fyrir sitja í stjórn þær Sigrún Jónsdóttir og Guðrún Nikulásdóttir.
Tillaga um varamenn til stjórnar eru Einar M. Nikulásson, Gunnar S. Björnsson og Ægir Frímannsson, samþykkt meðlófataki.
Tillaga um endurskoðanda er Pétur Jónsson, löggiltur endurskoðandi, samþykkt með lófataki.
Önnur mál
Guðmundur þakkaði traust sem honum var sýnt með endurkjöri til formanns og bauð Stefanía velkomna til starfa. Ægi þakkaði hann góð störf um áraraðir og lagði fram tillögu um að hann yrði gerður að heiðursfélaga Landssambands sumarhúsaeiganda. Var það samþykkt samhljóða. Guðmundur afhenti Ægi heiðursskjal þessu til staðfestingar.
Sveinn lagði fram tvær ályktanir fyrir fundinn.
Aðalfundur Landssambands sumarhúsaeigenda haldinn 29. apríl 2015 mótmælir þeim miklu hækkunum á opinberum gjöldum í formi fasteigna- og þjónustugjalda sem lögð eru á frístundahúsaeigendur á Íslandi ár frá ári án þess að þjónustustig hækki hjá sveitarfélögum. Var þetta samþykkt samhljóða.
Aðalfundur Landssambands sumarhúsaeigenda haldinn 29. apríl 2015 hvetur stjórnvöld til að flýta aðgerðum til að tryggja staðbundnar brunavarnir í frístundahúsabyggðum. Samþykkt samhljóða.
Ekki tóku fleiri til máls, þakkaði Guðmundur fundarmönnum fyrir góðan fund, sagði að ný heimasíða og nýtt félagaskráningakerfi myndi nýtast vel í framtíðinni og auðvelda stjórn að koma skilaboðum til félagsmanna. Þakkaði hann fundarstjóra fyrir fundarstjórn. Fundarmönnum bauð hann í kaffi og kleinur og í almennt spjall eftir fundinn.
Fundi slitið kl. 22.00.
Guðrún Nikulásdóttir, fundarritari