Aðalfundur 2011
Fundur haldinn 25. maí 2011 að Skipholti 70, Reykjavík
Fundarsetning
Guðmundur Guðbjarnason formaður setti fundinn kl 20:10. Bauð hann fundarmenn og sérstakan gest fundarins velkomna til þessa 20. aðalfundar Landssambands sumarhúsaeigenda, en stofndagur þess var 27. okt. 1991 af frumkvöðlinum Kristjáni heitnum Jóhannssyni.
Skipan fundarstjóra og fundarritara
Ásgeir Guðmundsson var skipaður fundarstjóri og Margrét Jakobsdóttir fundarritari.
Gestur fundarins
Ragnheiður Davíðsdóttir fv. forvarnarfulltrúi hjá Vís og fv.lögreglukona sem rekur nú forvarnarfyrirtækið Tjónavarnir. Flutti hún áhugavert erindi um hinar ýmsu hættur sem geta beðið okkar og varnir við þeim. Vörn gegn innbrotum þar sem læst hlið væru helsta vörnin ásamt nágrannavörslu. Eldvarnir þar sem ódýrar lausnir eins og eldvarnarteppi, reykskynjarar í hverju herbergi og slökkvitæki og eins væri gott að hafa flóttaleið fyrirfram ákveðna.
Vatnsskaðar eru algengir. Slys á börnum í bílum, fjallgöngum, sundstöðum – við akstur á torfæruhjólum – þar benti hún á þá staðreynd að til að aka slíku farartæki þyrfti ökuskírteini en dæmi eru um að börn fái að aka þeim í sumarhúsabyggðum. Hún benti á herta löggjöf við ölvunarakstri. Lausaganga hunda gæti verið hættulegt.
Fundarstjóri þakkaði fyrir gott innlegg. Sveinn þakkaði sömuleiðis. Áréttaði um þjófnaðarvandamálið. Hann gat þess líka hvað varðar brunavarnir að nánast hvergi eru brunahanar í frístundabyggðum. Það stafar af því hversu vatnsbúskapurinn er lélegur á þessum svæðum.
Fyrirspurn kom um hvort tryggingarfélögin veittu afslátt á iðgjöldum vegna forvarna. Ragnheiður kvað svo vera en upphæðirnar væru skammarlega lágar – við ættum í krafti sameiningamáttar að knýja á hækkun.
Til upplýsíngar þá verða tjonavarnir.is inni á vefsíðu okkar.
Formaður afhenti Ragnheiði að lokum fána félagsins á stöng í þakkarskyni.
Fundargerð síðasta fundar
Samþykkt að upplestur hennar væri óþarfur þar sem hún væri birt á heimasíðu LS.
Skýrsla stjórnar
Guðmundur Guðbjarnason las skýrslu stjórnar; helstu þættir hennar eru;
Á árinu voru haldnir 5 stjórnarfundir.
Skrifstofan er opin 4 daga í viku mánudag – fimmtudag frá 9 – 12.
Þá fjallaði Guðmundur um að tveir úrskurðir voru kveðnir upp í nýrri nefnd Alþingis úrskurðarnefnd húsamála þar sem deilt var um leigusamninga. Guðmundur fór yfir meginefnið og niðurstöðuna.
Þá ræddi Guðmundur aðkomu Landssamband sumarhúsaeigenda að kæru vegna sorphirðu og gámamálum sem voru leitt til lykta í Grímsnes og Grafningshreppi en ekki í Bláskógabyggð.
Þá ræddi Guðmundur um seyrumál og skattamál vegna söluhagnaðar af sölu sumarhúsa.
Ný heimasíða hefur litið dagsins ljós þar sem finna má ýmsar hagnýtar upplýsingar. www.sumarhus.is.
Sumarhúsahandbókin var að venju gefin út á árinu. Útgáfan var í höndum Juralis ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður var Sveinn Guðmundsson.
Nokkur aukning hefur orðið á aðild að félaginu. Um áramót voru 69 félög í LS með 2.829 félagsmenn og aðauki 1523 með einstaklingsaðild eða samtals 4.352 félagsmenn. Nauðsynlegt er að vinna að fjölgun félagsmanna.
Ársreikningar Landssambandsins
Sveinn Guðmundsson framkv.stjóri fór yfir helstu tölur:
Rekstrartekjur kr. 6.446.406,
– Vaxtatekjur kr 31.808,
– Rekstrargjöld kr. 8.073.810,
– vaxtagjöld kr 2.875,
– rekstrartap kr. 1.598.471,
– eigið fé kr 4.610.585,
Orðið laust um skýrslu stjórnar og reikninga LS
Guðmundur Adólfsson var áægður að hafa fengið gámana aftur en skorar á fólk að hætta að misnota þá og setja trjáúrgang, viðhaldsúrgang og málningarfötur í gámana sem aðeins eru fyrir heimilissorp.
Pétur Syðri Reykjum sagði þeirra gám farinn. Þar væru menn ánægðir með það og hyggjast flokka sitt sorp og flytja sjálfir burt.
Dagfinnur Jóhannsson Stekkjarlundi Miðfellslandi sagði sögu af vandræðum með rafmagnshlið. Lögregla hefði verið kvödd til og kom hún skjótt en komst ekki inn um hliðið það var læst. Eins gæti komið fyrir um aðkomu sjúkra – og slökkvibíla. Páll Hilmarsson rafeindavirki kvaddi sér hljóðs og sagði að þetta ætti ekki að vera vandamál ef hliðin eru rétt uppsett því símanúmer allra þessara öryggisaðila eiga að vera sett inní hugbúnað hlíðsins. Eðlilegast taldi hann að 112 veitti þá þjónustu að opna fyrir alla þessa aðila.
Reikningar LS og skýrsla stjórnar borin undir atkvæði
Samþykktir einróma.
Ákvörðun árgjalds
Tillaga að hækka árgjald einstaklinga úr kr 2.750, – í kr. 3.300,- Fyrir félögin fyrir hvern félaga úr kr. 1.000, – í kr 1.300, – .
Sveinn Guðmundsson framkv. stj. rökstuddi þörfina fyrir að hækka félagsgjöldin og benti á að sambandiðvar rekið með 1.6 millj. króna halla á síðast ári sem stafaði af hækkun skrifstofukostnaðar og lýsti álaginu sem væri á skrifstofuna. Hann sagði reyndar að þessi hækkun dyggði ekki til. Páll Jónsson kom með tillögu um að hækka aðild félaga í félögum í kr 1.500, – því ekki væri hægt að reka félag með tapi. Margir formenn félaga tjáðu sig um málið. Kváðust vera búnir að halda sína aðalfundi þar sem kynnt hefð i verið árgjald uppá kr 1000, – og treystu sér ekki til að kynna slíka hækkun töldu betra að hækkun færi fram í áföngum. Var fyrri tillaga samþykkt samhljóða.
Skýrsla laganefndar
Engar lagabreytingar liggja fyrir.
Kosning stjórnar
Guðmundur Guðbjarnason gaf kost á sér til endurkjörs til formanns. Samþykkt með lófataki.
Ægir Frímannsson og Margrét Jakobsdóttir áttu að ganga út en gáfu kost á sér til endurkjörs til 2ja ára. Samþykkt með lófataki.
Ágúst Guðmundsdótir og Hjördís Bára Sigurðardóttir voru kosnar til 2ja ára á síðast ári en hættu af persónulegum ástæðum. Í þeirra stað voru kosnar þær. Sigún Jónsdóttir og Guðrún Nikulásdóttir.
Varamenn: Björn Friðfinnsson, Einar M Nikulásson og Ásgeir Guðmundsson. Endurskoðandi Pétur Jónsson löggiltur endurskoðandi. Guðmundur Guðbjarnason formaður sæmdi Margréti Jakobsdóttur gullmerki LS fyri 10 ára setu í stjórn.
Önnur mál
Sigurður í Svanabyggð formaður til 14 ára. Taldi hann eins og aðrir læst hlið eða rafmagnshlið nauðsynleg. Hann sagði að menn frá Securitas hyggðust mæta á aðalfund hjá þeim til kynningar. Hann hafði áhyggjur að atvinnustarfsemi í frístundabyggð. Dæmi væri um vinnustofur og fræðslunámskeið. Hann spurði um heimild til útleigu á sumarhúsum. Líka um heimild til að hafa lögheimili í sumarhúsi.
Sveinn svaraði að lögin frá 2008 segðu að frístundabyggð sé ekki atvinnubyggð það væri þá blönduð byggð ef svo væri. Um lögheimili er þannig tekið á í lögunum að í undantekningartilfellum ef slíkt er heimilað þá erfist það ekki. Um útleigu á sumarhúsum sagði hann að ekki væri hægt að banna það vegna eignaréttarákvæða. Þá benti Sveinn á þá staðreynd að við frístundahúsaeigendur höldum uppi sveitarfélögunum með fasteignagjöldum okkar og auka þjónustugjöldum – seyrugjaldi o.fl. og fáum litla sem enga þjónustu í staðinn.
Talað um að skylda ætti sveitastjórnir til að halda fundi með sumarhúsaeigendum. Skorradalur og Hvalfjarðarsveit – Svínadalur standa sig þó vel í þeim efnum.
Bragi Finnbogason sagði frá misnotkun á kalda vatninu – þar sem menn setja upp dælu við hús sitt til vökvunarog annara hluta á kostnað annara notenda á greininni.
Kristján hafði áhyggjur af verðandi skotsvæði sem ætti að koma fyrir á 50 hektara svæði á Rangárvöllum ekki langt frá sumarhúsabyggð.
Þorkell Guðmundsson frá Langá í Borgarfirði sagði að þeirra sveitarfélag þjónustaði sitt fólk ekki neitt.
Fundarstjóri lokaði umræðu og gaf formanni orðið.
Guðmundur Guðbjörnsson formaður þakkaði fyrir traust sér sýnt.
Þakkaði hann fyrir góða fundarsetu. Fundi slitið kl 22:30. Fundarritari Margrét Jakobsdóttir.