Aðalfundur 2012
Fundur haldinn 3. apríl 2012 í Reykjavík
Fundarsetning
Guðmundur Guðbjarnason formaður setti fundinn kl 20.00. Bauð hann fundarmenn og gesti fundarins velkomna. Harmaði hann sérlega lélega fundarsókn sem trúlega mætti að hluta til rekja til landsleiks handbotaliðs okkar á sama tíma. En löglega var til fundarins boðað svo haldið var áfram.
Skipan fundarstjóra og fundarritara
Sveinn Guðmundsson var skipaður fundarstjóri og Margrét Jakobsdóttir fundarritari.
Gestir fundarins
Öryggisfulltrúarnir Svanberg Hreinsson og Hilmar Guðlaugsson frá fyrirtæki sínu Besafe. Kynntu þeir öryggisgluggahlera sem þeir flytja inn. Eiga þeir að vera öruggasta þjófavörnin sem völ er á. Buðu þeir afsláttarkjör til félagasmanna. Þetta er nokkuð stór fjárfesting ca. kr 680 þús. á meðal bústað. Nánari upplýsingar á www.besafe.is.
Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð aðalfundar 2011 er birt á heimasíðu sambandsins og í Sumarhúsahandbókinni 2011.
Skýrsla stjórnar
Guðmundur Guðbjarnarson formaður flutti skýrslu stjórnar: Helstu þættir hennar eru: 4 stjórnarfundir voru haldnir á árinu. Skrifstofan flutti að Síðumúla 27 um mitt ár og er hún opin 4 daga í viku þ.e. mánudaga til fimmtudaga milli kl. 9 og 12. Þá rakti hann hin ýmsu réttindamál og ágreiningsmál sem rekin eru fyrir félagsmenn fyrir úrskurðarnefnd frístundahúsamála. Sagði frá hversu þunglamaleg starfssemi úrskurðarnefndarinnar er. Beðið er með eftirvæntingu eftir niðurstöðu tuga mála en engin mál hafa verið úrskurðuð síðan í febrúar 2011. Hann ræddi um öryggisnúmerin og taldi að tímabært væri að ráðast í nýja herferð því mörg sumarhús eru án öryggisnúmera. Sorphirðan er enn til umræðu. Enn verið er að vinna að breytingu á lögunum í Umhverfisráðuneytinu sem sambandið styður. Sumarhúsahandbókin var að venju gefin út á árinu. Útgáfan var í höndum Juralis ehf. Ritstjóri og áb.m. Sveinn Guðmundsson. Félagsmannafjöldi: Aðildarfélögum fjölgaði um eitt — í 70 með 2845 félaga samtals. Einstaklingsaðild er 1418 eða alls 4263 félagsmenn í allt.
Ársreikningar Landssambandsins
Sveinn Guðmundsson framkvæmdastjóri fór yfir helstu tölur. Rekstrartekjur voru kr 7.242.100. Vaxtatekjur kr 2.614. Rekstrargjöld voru kr 9.746.622. Rekstrartap kr 2.501.908 Eigið fé kr 2.108.677.
Orðið gefið laust um skýrslu stjórnar og reikninga LS
Heilmiklar umræður urðu um reikningana og einstaka liði þeirra. Þetta er annað stóra tapárið. Í fyrra 1.6 mkr og í ár 2.1 mkr. Sveinn sagði frá sparnaðarleiðum skrifstofu. Skrifstofustjóri í 1⁄2 starfi hefði hætt um áramót. Húsaleiga á nýja staðnum væri lægri og útlagður kostnaður við heimasíðu yrði ekki stór. Hvatti hann félagsmenn til að láta skrifstofu vita um netföng svo spara mætti póstburðargjöld o.s.frv. Haraldur í Borgarbyggð sagði og aðrir tóku undir.“ Við megum ekki spara okkur í hel”. Það er svo margt sem hefur áunnist gegnum árin sagði Guðmundur Arnórsson, Hólaborg. Almennt var það mál allra að viðsnúningur yrði að verða á rekstrinum því eitt tapár í viðbót þýddi dauða félagsins sem alls ekki mætti verða. Því hver ætti þá að gæta hagsmuna okkar.
Reikningar LS samþykktir einróma
Ákvörðun árgjalds
Stjórnin lagði til að árgjöldin hækkuðu í kr 1500 fyrir aðildarfélögin og kr 3500 fyrir einstaklingaðild. Allir fundarmenn voru sammála um að félagsgjöldin væru allt of lág. Borin voru saman árgjöld annar félaga svo sem Hjartaheilla, FÍB, Húseigendafélagsins o.fl. Guðmundur Arnorsson, Hólaborg, Grímsnesi kom með tillögu um hækkun í kr. 1700 hjá aðildarfélögum. Haraldur í Borgarbyggð með tillögu um hækkun í kr. 2.000. Sigurður Jónsson, Oddsholti Grímsnesi kom svo með tillögu: 10 % hækkun einstaklinga úr kr 3.300 í kr 3.630 25 % hækkun félagsaðild úr kr 1.300 í kr 1.625 Var hún samþykkt einróma.
Kosning stjórnar
Guðmundur Guðbjarnason gaf kost á sér til endurkjörs til formanns. Samþykkt með lófataki. Þær Sigrún Jónsdóttir og Guðrún Nikulásdóttir sem kosnar voru til eins árs á síðasta fundi gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Var klappað fyrir þeim. Varamenn: Björn Friðfinnsson, Einar M. Nikulásson og Ásgeir Guðmundsson. Endurskoðandi: Pétur Jónsson, löggiltur endurskoðandi.
Önnur mál
Seyrulosunin var til umræðu — þótti dýr og spurning hvort LS ætti hugsanlega að taka að sér þessa þjónustu í verktöku vegna góðra tekjumöguleika. Guðmundur formaður upplýsti að þar þyrfti lögbundið starfsleyfi og væri ekki góð hugmynd, Sveinn tók undir það. Óli Stefán vildi þakka fyrir vel unnin störf. Fleiri svo sem Guðmundur Arnórsson, Haraldur og Páll þökkuðu stjórn og framkvæmdastjóra einnig fyrir árvekni í hagsmunagæslu fyrir okkur sumarhúsaeigendur.
Sveinn þakkaði fyrir hlý orð í okkar garð.
Guðmundur formaður þakkaði fyrir málefnalegar umræur og hversu áhugasamir fundarmenn hefðu verið. Þáþakkaði Guðmundur traust sér sýnt.
Fundi slitið kl 22.
Fundarritari Margrét Jakobsdóttir.